Skvísublogg around the world!
04.09.2006 10:47:55 / Hafdis

Ballið byrjað....

Robbi byrjaði í nýju vinnunni á föstudaginn þannig að nú er ég bara ein með litlu peyjana mína, búin að kvíða nokkuð fyrir þessu en það hlaut nú að koma að því að kallinn yrði að fara að vinna aftur fyrir stór fjölskyldunni :) Þetta á örugglega eftir að ganga vel, vona það allavegana :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 16:55:19 / Hafdis

;)

hæ hæ

þá er búið að skíra prinsana eins og þið flestar vitið en ég er ekki alveg viss hvort að þú sért búin að fá fréttirnar Ólöf ;) en allavegna þá var tvíburi A skírður Alexander Rúnar og tvíburi B Guðmundur Reynir í höfuðið á afa sínum :) og hann er ekkert smá ánægður með það ;) En annars gengur allt bara rosalega vel held bara að við séum alveg ótrúlega heppin með litlu drengina okkar, það er kannski líka bara best að gera eins og við gerðum að vera búinn að búa sig undir það versta og þá er allt annað bara plús og svo eru stóru krakkarnir alveg ótrúlega dugleg að hjálpa til kannski stundum einum of. En nú er hann Guðmundur farinn að góla og vill fá þjónustu þannig að ég bið að heilsa í bili .............................................

kv.Hafdís


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 18:10:27 / agnes

hellllóoo

Skvísustur! Mikið er gott að vera heima. Ýr, ég er alveg að fara að koma að skoða nýja húsið - þú sleppur ekki svona auðveldlega frá mér, flytja í Mosfellsdalinn, puff þú verður að gera betur en það :lol: Það er allt ljómandi að frétta af mér, allt að gerast í húsnæðismálunum, fengum nýtt tilboð í dag og vonandi förum við bara að ljúka þessu af, ég ætla nebbla að gera tilboð í hús á Reyðarfirði sem er æðislegt! Joakim er ekki búinn að sjá það en það er allt í lagi - hann fær hvort sem er ekkert að ráða :D

Ólöf, varstu búin að plana einhvern stelpuhitting þegar þú kemur heim? Sigga hélt þú hefðir eitthvað minnst á 22.júlí. Ég vona ekki því ég kem ekki heim frá USA fyrr en á sunnudagsmorgunn þann 23. Ég bað pent um að komast heim með föstudagsfluginu en það gekk ekki alveg upp. Flýg bara frá Texasinu til Minneapolis á föstudeginum og svo heim til Íslands á laugardagskvöldinu. Ég ætti kannski ekkert að kvarta, ég get þá bara túristast í Minneapolis allan laugardaginn, er ekki Mall of America þar? ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 11:15:12 / Hafdis

Smá fréttir ;)

Hæ hæ skvísur

Af okkur er allt gott að frétta og prinsarnir dafna vel þeir stækka og stækka og er varla hægt að segja lengur við B að hann sé sá litli því hann er á hraðri leið með að ná stóra bróðir sínum ;) sem er bara frábært. Við erum loksins búin að ákveða nöfnin á þá og ætlum við að skíra þá 25. júní öllum í fjölsk. til mikillar ánægju því fólk er orðið ansi pirrað á að segja A eða B, litli eða stóri og eldri eða yngri þegar verið er að tala um þá. Við ætlum að skíra heima hjá mömmu og pabba og þá verðum við búin að prófa að skíra upp á spítala, í kirkju og í heimahúsi. Agnes þú hefur kannski samband þegar þú ert á landinu og þá getum við reynt að hittast yfir góðum kaffibolla :)

kv. Hafdís


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 14:29:23 / agnes

afmælisbarn gærdagsins

ÓLÖF til hamingju með afmælið í gær snúllust! Ég sendi þér sms en veit ekkert hvort þau hafi komist til skila, símkerfið hérna í Brazil er ekkert sérstaklega stabílt...


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 08:18:43 / Ýr Þórðard.

Stund milli Engihjalla vs. Hlaðvarpa

Sælar allar sem ein:)

Það hefur verið nóg að gera hjá minni síðastliðna daga, verið að pakka á fullu í Engihjallanum, hann nánast búin og svo hef ég verið að reyna að taka upp úr kössum hér í Hlaðvarpanum, en án gríns ég er svo slök hér í sveitinni að mér verður lítið úr verki8| Vonandi breytist það:!: (þ.e.a.s. að það  verði tekið upp úr kössunum, í lagi með slökunina... hehehe

Litlu börnin mín eru alltaf að stækka og þeim gengur vel að aðlagast nýju umhverfi. Aðalbjörg er mjög sátt við flutningana þó að auðvitað hún eigi eftir að sakna vinanna og Þórir trommar hér í eldhúsborðið og er alltaf glaður við sitt. Reyndar held ég að hann sé á góðri leið með að verða óþekktarangi en það er önnur saga;)

Jæja ætla að reyna að gera eitthvað að viti, hafið það sem best kellur og ég reyni að vera dugleg að fylgjast með heimasíðu úglendinganna eins og einhver myndi orða það:haha:

Knús, Ýr


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 14:01:50 / kaffi

Blog

stelpur eg opnadi blog sidu um daginn, ef did hafid ahuga a ad kikja da er slodin tren32.blog.is
Olof

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 19:54:19 / kaffi

Smasaga fra Springfield

Dad er ordid svo langt sidan einhver hefur skrifad ad eg aetla adeins ad segja fra sidustu helgi. I tilefni maedradagsins kom tengdo i heimsokn yfir helgina. Eg verd ad segja ad eg kann agaetlega vid hana en dad sama er ekki haegt ad segja um bornin hennar. Systir hans Jeremy, Juli for a vollinn ad na i hana.Daer maedgurnar akhvadu ad fara beint i hadegismat og fara a nokkur sofn i DC. Audvitad endadi dad allt i haalofti og degar kerlingin loksins kom i hus da var bara byrjad a dvi ad sturta i sig eins miklu vini og mogulega var haegt ad koma nidur svo hun gaeti gengid i gegn um kvoldid half dofin eins og hun ordadi dad. Eg hef aldrei a aevinni hitt eins disfunctional fjolskyldu.Naesta dag var farid i dyragardin i DC og eg eyddi deginum i ad hlusta a dau 3 karpa endalaust"du keyrir of hratt,du gengur of hratt, af hverju er folk almennt svona feitt her, og so on and on.........helt hun aetladi aldrei ad haetta.Um kvoldid var Jeremy ykt pirradur svo hann aepir a hana ad hann se 34 ara og hun durfi ekki ad koma fram vid hann eins og krakka.Detta var a laugardagskvold.A manudagsmorgni fyrir brottfor segir mamma hans" Jeremy eg helt ad du vaerir 33 ara" sem er rett hja henni en i blindri reidi hafdi Jeremy mist einhverjir tolu sem hafdi stokkid svona daegilega fram. Dannig ad i stadinn fyrir ad kyssast og kvedjast var farid karpa um ad dad vaeri nu i dad minnsta haegt ad hafa arin a hreinu ef hann aetladi a annad bord ad birsta sig svona vid hana...!!
Eg hringdi degar eg kom heim sama dag i mommu og pabba og sagdi deim hversu heitt eg elskadi dau:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 08:44:48 / Ýr Þórðard.

Gleðilegt sumar:)

Sælar elskurnar og gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn:) Nú fer að styttast í Hafdísina okkar, hún verður sett á stað á mánudaginn ef ekkert hefur gerst fyrr. Hvað haldið þið að leynist í bumbunni? Ég held að þar séu tvær dömur, hélt fyrst að það væri stelpa og strákur en mig dreymdi svo dömurnar svo ég held mig við þær:D

Hafið það sem best girls, heyrumst og sjáumst Ýr


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 19:13:01 / agnes

Sofandi handleggur og næsta ferð

Mikið er nú gott að vera heima hjá sér í ró og næði og fá svona langt og gott frí. Samstarfsmenn um allan heim eru alveg gáttaðir á þessu langa fríi hérna á Íslandi :D Ég notaði tækifærið og skellti mér í ræktina og tók vel á því í Body Pump. Það var kannski ekki alveg úthugsað því ég held ég hafi tognað eða eitthvað í öðrum handleggnum sem var alveg ónýtur i heila viku. :S Svo loksins þegar hann var eitthvað að vakna til lífsins dreif ég mig í bólusetningu fyrir Brasiliúferðina og fékk 4 sprautur í sama auma handlegg sem dreif sig þá auðvitað strax aftur í verkfall :$ Illa farið með einn aumingja handlegg, hann er ánægður með að vera kominn í páskafrí. ;) Næsta ferð er svo 26.apríl á 2ja daga námskeið í álveri í Suður Karólínu og það vill svo skemmtilega til að það er búið á föstudegi svo ÓLÖF mér datt í hug hvort ég ætti að framlengja ferðina eitthvað yfir helgina og þú gætir komið og heimsótt mig eða ég heimsótt þig. Get bara flogið til Baltimore og tekið vélina heim daginn eftir eða eitthvað, eða þú gætir komið til mín á hótel í Goose Creek rétt hjá Charleston held ég það heiti:!: Hvernig líst þér á? búin að plana eitthvað þessa helgi?

Gleðilega páska allar! 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 16:25:54 / Hafdis

smá fréttir

Hæ hæ skvísur ;)

Ég veit að ég er ekki búin að vera dugleg að skrifa  :) enda er ég ekki mikið í tölvunni eins og ég var. Af mér er bara allt ágætt að frétta er samt eiginlega alveg búin að fá nóg að þessari meðgöngu og væri ég alveg til í að litlu krílinn fari að láta sjá sig en það er greinilegt að þeim líður bara rosalega vel í bumbunni og vilja ekki láta sjá sig strax. En ég er að detta í 36 viku á föstudaginn og í rauninni getur allt farið að gerast hvenær sem er ;) Þau er bæði orðin það stór að það væri allt í lagi ef þau kæmu, þess vegna í dag  ( sem ég hefði ekkert á móti ) ;) Ég reyni bara að láta dagana líða eins hratt og ég get er voðalega dugleg að lesa og dúlla mér eitthvað en verst finnst mér að geta ekki keyrt ég er eiginlega alveg hætt að keyra því það er svo erfitt fyrir mig að keyra út af bumbunni. Ég er með stýrið alveg í bumbunni og ég þori ekki að taka neina sénsa ef eitthvað myndi gerast í umferðinni. Þó svo að ég sé alveg brilljant bílstjóri þá hef ég meirir áhyggjur af hinum híhíhíhí :haha: En ég er að fara í sónar á föstudaginn og þá kemur í ljós hvað þau eru orðin stór og´ég skal leyfa ykkur að fylgjast með :)

Þangaði til næst ;) 

 kv. Bumbulína með meiru


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 04:33:16 / agnes

líka sól og sumar í charlotte :o)

hehe, þetta er bara eins og bestu sumardagar á klakanum hérna í suðurríkjunum, held annars ég sé í suðurríki, kann ekkert í landafræði sem ég ætti kannski að fara að bæta mig í þegar maður er svona á ferðinni. Hafði til dæmis ekki hugmynd um að bæði Kanada og Brasilía væri næstum jafnstórt og Bandaríkin þangað til fyrir nokkrum dögum síðan :haha: Það er aldeilis ágætt að vera hér í charlotte, ég afrekaði meira að segja að skella mér í risastórt shopping center áðan og strauja visakortið aðeins. Victorias secret klikkar sko aldrei ;) Ég kem heim á föstudagsmorgunn og held svei mér þá að ég fái að vera heima hjá mér í nokkra daga, maður veit samt aldrei og ég þarf að fara að plana Brasilíuferðina bráðum, reikna með að ég fari fljótlega eftir páska. Ólöf, ég æddi beint á netið eftir að hafa talað við þig og þú getur flogið frá JFK í new york með American Airlines beint til sau paulo fyrir ca. 950 dollara báðar leiðir, tekur bara 9,5 tíma 8| Þetta var bara samt eitthvað sem ég datt inn á, það er vonandi hægt að fljúga beint á flugvöll sem er nær sao louis, þú bara verður að koma í heimsókn, það væri æði!!! Fann bloggsíðu með upplýsingum og myndum af bænum www.wojner.de/slz/index.htm Hvað er annars að frétta af ykkur hinum skvísum? Mér finnst nú það mætti fjölga blogginu frá ykkur hinum, sérstaklega þegar maður er alltaf í úglöndum og vill fylgjast með. Er ekki kominn tími til að tvíburamammann fari að skrifa nokkur orð? Hvernig gengur allt hjá þér?
sólarkveðjur frá Charlotte í Norður Karólínu 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 19:20:31 / kaffi

Ummm sol og sumar paradis....

Jaeja stelpur nu er loksins buid ad hanna gardinn okkar sem er eitt drullusvad eftir hundana. Vid erum buin ad panta efni i storan pall sem a ad spanna allan gardinn fyrir utan sma skika her og dad sem verdur med blomum og jurtum. Eg er svo aest, eg hlakka svo til ad sola mig i gardinum og dunda mer vid gardyrkju og svo ekki se minnst a ad halda grillveislur8)
Nu er vorid lika loksins gengid i gard og vedrid er dasamlegt.
Vid erum buin ad akveda ad lata senda BMW hingad, hann er ekki ad seljast og kronan fer laekkandi svo vid verdum bara eins og nordar herna med tvo eins bila a heimilinu:S
Eg sendi ykkur fyrir og eftir myndir af gardinum,
vorkvedjur
Olof

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 23:17:31 / agnes

Úr starfsmannaþorpinu

Þá er maður kominn austur og fæ að prófa að búa í starfsmannaþorpinu með öllum pólsku verkamönnunum :) Það er nú bara nokkuð kósí hérna þótt það vanti nú baðherbergi í herberginu mínu, það er líka horft svolítið á mann hérna á svæðinu, ekki mikið um kvenmenn á gangi! Ég verð hérna alla vikuna á fundum með amerískum ráðgjafagúrúum. Fór með þeim á Fáskrúðsfjörð að borða kvöldmat en einn þeirra hafði verið hér áður og vildi fara og sýna hinum special restaurant á Fáskrúðsfirði, specialið var þá bara að það væri borðað við hliðina á mótorolíu og sólgleraugum en við fórum á shell skálann þarna hinum megin við fjallið :lol: btw þá botna ég ekkert í þessum svaka göngum sem eru á leiðinni þangað og voru opnuð í haust, þau eru 6 kílómetrar og það er næstum ekkert þarna hinum megin við þau, einhver hlýtur að vera í vandræðum með að finna eitthvað að gera við peningana sína  8| Nýjustu fréttir eru annars að staðfest er ferð til Charlotte í Norður Karólínu í næstu viku frá mán-fim via Baltimore, verst maður stoppar ekki lengur þar til að geta fengið sér kaffibolla með virginia íbúum 8) Og aðalfréttir dagsins eru að ég er að fara í 3-4 mánuði til Sao Louis í Brasilíu! Þetta er heldur betur ævintýrastarf sem ég er búin að koma mér í! Brasilía!!! Maður á örugglega eftir að gufa upp í hitabeltisloftslaginu þarna 8)
Agnes OUT!


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 00:59:17 / agnes

frá sveitahóteli í kanada

 hæ skvísur
ég sit hérna á krúttlegu sveitahóteli í kuldanum í kanada og er að reyna að venjast tímamismuninum sem getur verið svolítið strembið. Þetta er búin að vera mjög fróðleg ferð en ég var fyrsta daginn í Montreal að hitta ráðgjafa sem hafa verið að vinna að stjórnkerfinu okkar og svo brunuðum við (ég og einn samstarfsmaður) norðar í Kanada að skoða álver hérna og halda fundi með stjórnendum þar til að læra af þeim. Höldum því áfram á morgun og keyrum svo aftur til Montreal á föstudag þar sem við fljúgum til Boston á fund áður en við fljúgum heim. Mjög busy schedule en rosalega lærdómsríkt. Ég verð svo heima um helgina en flýg austur á mánudag þar sem verða fundir alla vikuna og kem heim á föstudag og flýg svo til charlotte í norður karólínu á mánudag og verð þar alla næstu viku. Vikuna eftir er ég held að fara til Flórída og .... semsagt þarf að venjast því að vera í sambúð með ferðatöskunni minni og flugsætum og hótelherbergjum. Það er reyndar auðvelt að venjast business class flugsætum og Hilton hótelum :lol: en erfiðara að venjast því að hitta kall og fjölskyldu bara svona til spari 8| En þetta verður nú mest svona fyrstu mánuðina og hægist svo vonandi um þegar starfsemin byrjar fyrir austan.
bonsour madams 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10